Auðkenning
Hvernig forritaskilin vita hver kallar: lyklar, tókar og lotur.
Þjónusta / 03 · API testing
Forritaskil eru oft stysta leiðin að gögnunum. Þau eru prófuð sér, án viðmótsins sem felur þau: hver má kalla, hvað fær hann til baka og hvað gerist þegar kallað er öðruvísi en til stóð.
01 / Umfang
Hvernig forritaskilin vita hver kallar: lyklar, tókar og lotur.
Hvort einn notandi nær í gögn annars, eða hlutverk fær meira en því ber.
Hvað gerist þegar köllin koma í annarri röð, með öðrum gildum eða oftar en gert var ráð fyrir.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú heimilar skýrt og skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið sé notuð niðurgreidd þjónusta sem framleiðandi líkans býður sjálfur, í gegnum OpenRouter. Slík þjónusta er yfirleitt ekki keyrð án gagnageymslu (ZDR). Sá sem rekur hana getur geymt það sem henni er sent og vinnslan getur farið fram utan EES. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra