Kvaðningarinnspýting
Hvort texti frá notanda, skjali eða vefsíðu getur tekið yfir fyrirmæli kerfisins (prompt injection).
Þjónusta / 04 · AI and LLM application testing
Kerfi sem byggir á stóru mállíkani (LLM) tekur við fyrirmælum úr texta, og textinn kemur ekki alltaf frá þér. Prófunin sýnir hvað gerist þegar einhver annar skrifar fyrirmælin.
01 / Umfang
Hvort texti frá notanda, skjali eða vefsíðu getur tekið yfir fyrirmæli kerfisins (prompt injection).
Hvort kerfið lætur af hendi gögn sem spyrjandinn á ekki að sjá: kerfisfyrirmæli, gögn annarra notenda eða innri skjöl.
Hvort hægt er að fá líkanið til að beita verkfærum sínum og sjálfvirkum fulltrúum (agents) á það sem það á ekki að snerta.
Hvort heimildum er framfylgt utan líkansins, eða líkaninu sjálfu treyst til að segja nei.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú heimilar skýrt og skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið sé notuð niðurgreidd þjónusta sem framleiðandi líkans býður sjálfur, í gegnum OpenRouter. Slík þjónusta er yfirleitt ekki keyrð án gagnageymslu (ZDR). Sá sem rekur hana getur geymt það sem henni er sent og vinnslan getur farið fram utan EES. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra